Collection: SYMBOLS // TÁKN

Línan Tákn er komin í sölu í verslun okkar Skólavörðustíg 43

Væntanlegt á vefverslun.

 

Heimur tákna hefur verið Helgu og Orra hugleikinn við sköpun skartgripa
sinna og hafa þau gjarnan sótt innblástur þangað í hönnun sinni. Nýja
skartgripalínan er þar engin undantekning en hún byggist eingöngu á
þekktum táknum sem hafa birst í ýmsum myndum frá örófi alda.

SVERÐIÐ / THE SWORD
Sverðið getur táknar styrk og hugrekki en getur einnig staðið fyrir sársauka og átökum.
The Sword can symbolize strength and courage but can also depict pain and struggle.

TUNGLIÐ / THE MOON
Tunglið er ljósið í myrkrinu og sveipt dulúð. Tunglið táknar tilfinningar og innsæi.
The Moon is our guiding light in the dark. It represents feelings and intuition.

SÓLIN / THE SUN
Sólin er lífið sjálft, hamingjan og vonin.
The Sun represents life itself, happines and hope.

EILÍFÐIN / ETERNITY
Eilífð er hugtak sem tekur okkur útfyrir mörk okkar vitundar. Án upphafs og án enda minnir það okkur á að dauðinn er hluti lífsins og að við erum hluti af hringrás. Við elskum inn í eilífðina og vináttubönd vara endalaust.
Eternity is a concept that takes us beyond the boundries of our awareness. With no beginning and no end it reminds us that death is part of life and that we are part of a cycle. Our love is everlasting and our frienships are eternal.

HJARTAÐ / THE HEART
Hjartað er eitt þekktasta tákn í heiminum og tengjum við það flest við ástina og umhyggju.
Hjartað er miðpunktur vitundar okkar og getur þannig táknað sálina eða okkar innri kjarna.

The heart is one of the most recognized symbols of the world and we mostly relate it to love and
compassion. The heart is also the center of our consciousness and can symbolize the soul or
our inner essence.

AUGAÐ / THE EYE
Augað sér og hefur því í sumum menningarheimum fest sig í sessi sem tákn verndar. Að sjá er
einnig að skilja og að greina og því getur augað einnig táknað æðri skilning og það að sjá
sannleikan.
Tárið er fylgifiskur augans og í sinni einföldustu merkingu táknar það sorgina. En grátandi auga
endurspeglar einnig samúð og meðvitund um þjáninguna.

The eye sees and witnesses and therefore has become a symbol of protection in many cultures.
To see and perceive offers the ability to understand so the eye can also stand for higher
understanding and to realize truth.
The teardrop is the eye‘s companion and it‘s simplest meaning is sorrow. A weeping eye can
also represent compassion or the awareness of suffering.

No products found
Use fewer filters or remove all